Syndari Á föstudaginn keypti ég mér syndsamlega stutt pils. Það er svo stutt að það gefur máltækinu að eiga (ekki) bót fyrir borunni á sér nýja merkingu. Reyndar finnst mér allt fyrir ofan hné í styttra lagi svo ég er viss um að mörgum þætti lítið til syndapilsins koma. Hlíf er líklega sjóuðust af þeim konum sem ég þekki í stuttum pilsum og hún sagði mér einmitt um helgina þegar ég sýndi henni það að það væri ekkert svo svakalegt. Það sama sagði hún reyndar um bolinn sem ég var í á gamlárskvöld þegar ég kvartaði yfir óþarfa dónalegheitum af bolsins hálfu og fyrir vikið á ég myndir af mér frá borðhaldinu þar sem glittir í brjóstarhaldið. Ég veit ekki hvort Hlíf er áreiðanlegur ráðgjafi í þessum málum. Ef þið sjáið mig einhvers staðar á vappi og það glittir í kinnarnar, viljið þið í guðs bænum láta mig vita! Auður Ösp kl.23:15 þann mánudagur, mars 19, 2007 # |