Fönn Fönn Fönn Fönn Íslensk Fönn -ekta íslensk drulla- Það er ekkert lítið sem ég þoli ekki stuðmenn. Sérstaklega finnst mér þeir leiðinlegir núna í seinni tíð þegar þeir virðast hafa gleymt því að þeir eru miðaldra jónar sem voru einu sinni vinsælir. Flestir eru þeir orðnir fyrirmenn í okkar samfélagi sem eiga vini á réttum stöðum þannig að þegar að þeim dettur í hug að troða enn einum froðupopps viðbjóðnum í spilun þá hlaupa allir þeir vinir til og hjálpa þeim að græða smá á stefgjöldunum. Það nýjasta í uppátækjum skallapopparanna er að fara til útlanda og menga eyru útlendinganna líka. Nema að allir leiðinda beyglu vinir þeirra sem þeir hitta reglulega niðrí Laugum, á golfvellinum eða rótarý klúbbnum finnst þetta svo sniðugt að þeir kaupa upp alla miðana á böllin og skella sér með súrsuðum eiginkonum. Sem auðvitað veldur því að þeir sem búa erlendis og fíla stuðmenn af einhverri nostalgíu og heimþrá fá ekki miða á atburðinn. Það er ekkert fönn við það. Sykurlaust Egils Appelsín er ekki eitthvað sem ég get mælt með. Oj. Að lokum langaði mig að minnast á þessa bévítans vitleysu sem borgaryfirvöld ætla að láta yfir okkur ganga. Hverjum nema fégráðugum íslendingum myndi detta í hug að ryðja niður hluta af sögu borgarinnar og því sem gefur Laugarveginum sjarma til þess að byggja tröppulaus (og sálarlaus) verslunarhúsnæði. Mér finnst þetta persónulega fyrir neðan allar hellur og hvet ég alla til láta í sér heyra varðandi þetta mál. Hlekkjum okkur við "kofaskriflin", björgum Laugarveginum! Auður Ösp kl.16:00 þann miðvikudagur, febrúar 23, 2005 # |